20.apríl

Hlaut þessar fínu móttökur hér í Hong Kong, rúlluðum við hjá Bjarka og Strúllu, kynntist þar Ronju sem er hundurinn þeirra, sú var mjög á verði en það átti nú eftir að breytast, eins og hún áttaði sig ekki á því í fyrstu að ég væri dýravinur.  Þaðan til Huldu og Steindórs í morgunmat, ansi hreint notalegt það.  Úti á legunni liggur báturinn og þangað fórum við Bjarki eftir að hafa rölt ögn um verslunarstrætin og m.a. keypt síma með Hong Kong númeri.  Fórum yfir To Do listinn og bættum heldur á hann frekar en hitt, þar vorum við í 3-4 tíma held ég, komum við í bænum (SAI KUNG) á leiðinni heim, drógum að okkur efni og verkfæri fyrir næstu verk og tókum síðan með Thailenskan mat sem við borðuðum „heima“ og renndum niður með hvítvíni og gott ef ekki smá öli líka.  Töfraði fram íslenskt nammi við mikinn fögnuð brottfluttra, þegar Hulda Þórey var farin tölvaðist ég smávegis, sendi m.a. myndir uppá Frón og heyrði í minni ástkæru og sártsöknuðu Steinu, dreif mig í sturtu og fór síðan að sofa um 22.30 enda orðinn ansi sybbinn því ég hafði ekki sofið neitt af viti frá því ég vaknaði á sunnudagsmorguninn, daginn sem ég lagði af stað.  Góða nótt.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessaður félagi :)

Gaman að lesa bloggið hjá þér!  Sem sérlegur áhugamaður um báta, sérstaklega skemmtilega skemmtibáta þá mun ég fylgjast grant með verkefninu hjá þér.  Bestu kveðjur og gangi þér vel, kveðja Gulli

Gulli (IP-tala skráð) 23.4.2010 kl. 11:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband