23.4.2010 | 12:59
21.apríl
Vakinn kl. 7.15, hafragrautur, hinn sígildi morgunmatur á borðum, fór síðan með Strúllu í hennar vinnu inni í skógi eða verndarsvæði þar sem beljur ganga villtar þ.e. húsbóndalausar eins og hreindýr en engin veiðileyfi veitt á þær svo ég viti. Strúlla vinnur á leikskóla og meiningin var að festa klósett og vask sem í sjálfu sér er ekki flókið fyrir hagleiksmann en þegar hlutirnir passa ekki alveg gerast málin flóknari og ekki bætir úr skák að Manny, altmuligt maðurinn á staðnum var erfiður og vildi ekki vanda sig eins mikið og ég: Bara setja white cement og silikon = allt gott og flott J, þýddi ekkert að þræta við hann og þegar Strúlla reyndi að koma fyrir hann vitinu varðandi málningu þá gaggaði hann: I hate my job og var alveg klár á því að konan (Strúlla) hefði nú ekkert vit á þessu, verandi kvenkyns.
Nú nú, dvöl mín þarna varð styttri en til stóð og þá tók djúpa laugin við því ég var látinni keyra til baka og til stóð að ég færi sömu leið niðureftir eins og við fórum uppeftir, það vill nú til að ég tók þokkalega vel eftir leiðbeiningum og staðháttum og er auk þess með betra áttaskyn í útlöndum en í Grafarvoginum þannig að ég rambaði á réttan stað og hélt mig vinstra megin allan tímann og skemmdi bílinn ekki neitt. Það er nefnilega vinstri umferð hér og þá var nú gott að bílskömmin skyldi vera sjálfskipt því það gaf mér færi á að fikta frekar í græjunum. Ferðalagið til Englands fyrir 11 árum kom sér vel núna, vinstri keyrslan rifjaðist upp strax og ég fór m.a.s. rétt inní hringtorgin.
Hér eru 27°C ca en sólarlítið, í vinnunni þarf ég að stoppa reglulega til að þurrka svitann og hvílast, það verður nú fína lyktin af manni sísvitnandi og skítugum, Steina ætti að sjá á mér fingurna, hún elskar skítuga fingur vinnandi manns. Reif af vegg niðri við sturtuna bakborðsmegin og af gólfi stjórnborðsmegin, setti upp hátalara í Flybridge, sem er víst VIP stofan fyrir þá sem ekki vilja stýra galeiðunni innandyra, galopin með stýri og smá græjum og auðvitað góðu soundi. Steindór kom með Bjarka og renndu yfir hvort ég væri búinn að gera e-ð.
Borðuðum í klúbbnum um kvöldið. Ætli ég verði ekki farinn að borða hnetur þegar ég kem heim aftur því að hér verður ekki þverfótað fyrir þeim og þær lenda á hvers manns diski hvað sem tautar og raular, mikil er mæðan!! Fór yfir tölvupósta þegar heim var komið, reit dagbók og talaði lengi við Steinu á Skype og svo spjölluðum við Bjarki saman frameftir.
Athugasemdir
Eggert, hnetur og sund, er verið að kvelja þig allan daginn? Gangi þér vel að hafa stjórn á hlutunum :)
Linda Jack (IP-tala skráð) 23.4.2010 kl. 23:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.