22.apríl

Nú vaknaði ég klukkan 6.20, skaut ½ grautarskál í skoltinn á mér, fór með Bjarka og synti með honum og Pete Iron man mönnum (má segja þetta svona?).  Þeir syntu heila 1.000 metra sem í mínum heimi jafnast á við hálft Atlantshafið á móti straumi!  Ég tók til óspilltra málanna og þreytti sund á eftir þeim og skriðsund varð fyrir valinu – slæmt val það – og er ekki að orðlengja það að ég rétt komst yfir að bakkanum hinum megin með andköfum og laskað ego.  Ákveðinn í því að komast heila hundrað metra hvað sem tautaði og raulaði spyrnti ég mér kröftulega frá bakkanum og tók til við bringusund, en það var bara eins og ég hefði skilið lungun eftir heima eða gleymt að skrúfa frá loftslöngunni, það bara virkaði ekki neitt og ég skrönglaðist til vinstri og faðmaði bakkann og saup hveljur og ældi næstum lífsviljanum gersneyddur allri mannlegri reisn og hin forna frægð íþróttamannsins var farin fjandans til.  Einhvern veginn náði ég samt að komast 100 metra og stóð þar á öndum og gæsum í dágóða stund og skjögraði útúr mér setningunni: I though, púf púff, that I, púff púff was in púff, better shape púffffff.  Hvíldi mig við bakkan dágóða stund en ákvað að reyna aftur og lét skriðsundið lönd og leið og leið (eða silaðist) áfram á virðulegu, en alls ófögru, bringusundi og það eina sem gat sannfært mig um að ég hreyfðist úr stað voru fúgurnar á milli flísanna, ég virtist fljóta frá einni til annarrar þó hægt gengi.  Með einhverjum ráðum tókst mér þó að fara heila 700 metra án þess að örmagnast en ég fór ekki framúr neinum svo ég tæki eftir þrátt fyrir að vera á „slow lane“ eða braut fyrir hægfara!  Ég hef bara ekki synt svona langt svo ég muni eftir, ef frá eru talin raðsund, þ.e. 50-100 metrar hér og þar sem söfnuðust uppí 700 metra á nokkrum mánuðum/árum.  Það voru þungir handleggir sem héngu með síðum, skrefin yfir að klefanum.

Morgunmatinn snæddum við úti á verönd og það var nú huggulegt að mér fannst, mér finnst margt svo merkilegt hér sem öðrum þykir daglegt brauð og hrista sjálfsagt hausinn yfir því að mér skuli þykja taka því að færa slík smáræði í letur .  Eftir morgunverðinn rölti ég niður að bryggju sem er svona ~15 mínútna gangur.  Vann við hitt og þetta í dag en rakst oft á veggi og vantaði sitt af hverju þannig að ég fór pínu úr einu í annað og eins og segir í laginu með Randver: „Byrjaði á ýmsu en endaði fátt“.  En það verður nú annað lag á hlutunum á morgun get ég sagt ykkur.  Hulda og Kristján komu í heimsókn svo ég fengi nú kaffi með flóaðri mjólk og þeim leiddist nú ekki að komast í Kúlusúkkið.  Hulda bauð mér síðan í hádegismat í klúbbnum og þar fékk ég fínan pastarétt, salat, öl og kaffi að ógleymdu notalegu spjalli við frænku.

Allskyns snöfl og smotterý það sem eftir lifði dags, hengdi m.a. upp mynd af kærustunni svo mér leiddist síður í einverunni á tvíbytnunni.  iPod vaggan er komin í gagnið og núna hlusta ég á Álftagerðisbræður og Heimi og gaula hraustlega með Hong Kong búum til mikillar armæðu.  Kom mér síðan í land rétt fyrir 8 og rölti heim aftur.  Sat við skriftir og blog frameftir nóttu, milli þess sem ég maulaði á nammi með gestgjöfum og fór yfir lausnir og verkefni með Bjarka.  Góða nótt kl. 01.30.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta var mjög skemmtileg lesning, fólkið sem átti leið framhjá mér á meðan ég var að lesa hefur eflaust haldið að ég væri orðin alveg biluð, þvílík hlátrasköll :-) Knús og kossar

Steinunn (IP-tala skráð) 23.4.2010 kl. 13:19

2 identicon

Þú verður að passa þig að breytast ekki í Álft með því að hlusta svona mikið á Álftagerastbræður.  Það væri nú þokkalegt ef þú kæmir svo heim sem flugsynt álft í álögum. 

Gulli (IP-tala skráð) 23.4.2010 kl. 14:09

3 identicon

Það er nú meira hvað vatnið þarna hjá Kínafólkinu er þétt í sér og lamandi. Efnasamsetning er ekki sú sama og hér heima. Það er deginum ljósara.

Linda Jack (IP-tala skráð) 23.4.2010 kl. 23:45

4 identicon

Gaman að lesa þetta og fá smá innsýn í Hong Kong. Ég hélt að þú værir íþróttamaður ?  Hverskonar frammistaða er þetta ? En þú verður orðinn sólbrúnn og "hel-köttaður" þegar Steina kemur :)  

Valdimar H (IP-tala skráð) 24.4.2010 kl. 14:17

5 Smámynd: Eggert Marinósson

Það er eins og hreyfingaleysið í vetur sökum sífelldra hnjaska hafi haft áhrif á úthald mitt og atgerfi allt.  Ég held að lungun í mér til dæmis séu eins og batterí, það hleðst upp í þeim "botn" og minna pláss verður fyrir eðlilega virkni og andardrættir verða stuttir og innihaldslitlir, en ég lifi þó enn og á þó eftir að blogga um íþrótta"afrek" dagsins í dag, ég verð bara andstuttur við tilhugsunina.  Ég er ekki frá því að þeir séu með blý í vatninu hérna í HK miðað við ferðina á mér.

Eggert Marinósson, 24.4.2010 kl. 15:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband