26.4.2010 | 12:57
25.apríl
Það myndi vera sunnudagur í dag, svona nokkurs konar frídagur hjá innflutta vinnuaflinu, afmælisbrunch í uppsiglingu því að Jóhanna Lind, dóttir Bjarka og Strúlla á afmæli á morgun en uppá það skal halda í dag af praktískum ástæðum. Það þurfti auðvitað a kaupa hitt og þetta til að hafa á borðum og skötuhjúin fóru í það á meðan ég drap tímann við að gera sem allra minnst en þó eitthvað. Rölti mér niður á bryggju og tók Sampann (sjávar-leigubílinn munið þið) útí bátinn hvar við Bjarki pískuðum okkur út í tiltekt og hreingerningu með góðri hjálp.
Gestir tóku að týnast um borð í fleyið hver af öðrum og heilmikil súkkulaðikaka í formi Eyjafjallajökuls eða Eyjafjallakökuls var á borðum, með hraunstraumi og molum og svo var eldgosið myndað af einu kerti þar sem daman varð eins árs. Þetta var hin fínasta dagstund og það var nú mikið gott að sitja þegar flestir voru farnir að spjalla við þær frænkur mínar og mágkonu þeirra í rólegheitum að ógleymdum Stjána sem sat þarna hjá okkur og reyndi að láta sér ekki leiðast. Í þessu spjalli byrjuðum við að plana fríið okkar Steinu og það verður, ef allt gengur eftir, hreint út sagt frábært og alveg í okkar anda.
Að endingu skelltum við okkur í land og fengum okkur drykk í klúbbnum og þaðan heim til Huldu í einhverja stund, gripum í hljóðfæri og reyndum að spila Creedence Clearwater lög og það mátti næstum skynja að við værum öll að spila sama lagið, á gítar,bassa, trommur og hljómborð.
En þó dagur væri að kvöldi kominn var ekki öll dagskráin tæmd, Hulda bauð mér og Starra, syni sínum, í fótanudd sem voru hreint himneskar 45 mínútur í rólegheitum. Það er ekki útilokað að fólkið viti hvað þau voru að gera því ég var eins og nýr maður á eftir en þó sami rugludallurinn og fyrr, daman var nú ekki svo flink að hún næði að nudda úr mér ruglugenin, enda eins gott, ég væri nú ekki samur ef þau vantaði.
Að loknu fótanuddinu var skundað á Pizza Hut, tekin með Super Supreme heim í kotið. Ég gerði henni skil inni í herbergi á milli þess að ég bætti tónlist inná iTunes og skrifaði æviminningar austurfarans.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.