26.apríl

Er ekki við hæfi að óska Braga föðurbróður til hamingju með 79 ára afmælið og Jóhönnu Lind Bjarkadóttur til hamingju með sitt 1 árs afmæli, það er jú skemmtileg tilviljun að Bragi "talaði" barnið í hana svona ca í kringu brúðkaupið þeirra eins og einhverjir vita og þá var nú vel við hæfi að hún skyldi fæðast á afmælisdeginum hans, skyldi kallinn vera skyggn?
 

Eftir rysjóttan nætursvefn vaknaði ég við náttúrulegu vekjaraklukkuna ca 6.50 og reif mig framúr fljótlega uppúr því sökum þess að nú er hafin ný vinnuvika og hana skyldi byrja á gönguferð í skóginum, þ.e. í Lyons Educational park ef ég fer rétt með.  Arkaði þar um og joggaði með Huldu Þórey og Stjána upp og niður brekkur, annað veifið fékk maður silkihúfur á kollinn þegar gengið var í gegnum köngulóarvefina en það var nú ekki til skaða.  Þetta er svona á að giska fyrsta hreyfingin af viti sem ég þóttist nokkuð viss um að ég kæmist lifandi úr sökum áreynslu en gat þá einbeitt mér frekar að því að líta eftir slöngum, villisvínum- og hundum sem eiga það til að vafra um og bíta, stanga, höggva og rífa í sig mann og annan þegar best lætur, en það lét nú sem betur fer ekki best núna í morgun.  Allt um það, gönguferðin var hin fínasta, góð hreyfing og fínasta útsýni, gengum fram á þessa fínu strönd með Baywatch turnum og fíneríi, sem er víst hægt að hafa nokkurn veginn fyrir sig yfir sumarið því fáir leggja það á sig að ganga þennan spotta að henni, þar er líkast til hægt að eyða góðum degi í að gera ekki neitt nema að slappa af.

Ekki dugði nú að slóra allan daginn svo það var nú ákveðið að slaufa lautarferðum og drífa sig í sjóferð í staðinn.  Þarna úti á legunni dundaði ég mér við hitt og annað fram yfir 7 í kvöld, fátt markvert gerðist nema hvað mér tókst að koma mér ofaní, og uppúr, geymslukassa sem ég hélt að myndi ekki rýma, hvað þá losa sig við, mann með mitt holdafar.  Fimleikinn lék á fituna og ég smaug þarna ofaní og uppúr eins og höfrungur í lygnum sjó....... spurning hvort þetta er aðeins fært í stílinn?

Það er auðvitað ekkert lát á notalegheitunum hér eystra, mér var boðið í mat hjá Huldu og þar sameinuðust þeir sem voru á staðnum eina notalega kvöldstund, ég laumaðist uppí stofu og settist þar niður með tölvuna og öldunK og hafði það verulega notalegt þar til mér var boðið til borðs.  Þó að ég sé nú góðu vanur hjá tengdó og Steinu í dekri í og við eldhúsið þá er þetta nú ögn öðruvísi, ekki svo galið, en öðruvísi.  Í kvöld var boðið uppá dýrindis kjötbollur, salat og Jamie Oliver kartöflumús, gratineraða með ógurlega góðu eftirbragði og angan.  Ekki skemmdi nú hvítvínið fyrir, það rann ljúflega niður með bollunum og öllu hinu.  Uppúr 10 fórum við Strúlla heim hún fór beint í háttinn en ég settist beint niður og hélt áfram með dagbókina og hér er ég nú eins og þú sérð lesandi góður.  Það sækir nú samt á mig syfja, enda vakna ég alltaf eldsnemma en fer ekki beinlínis snemma í bólið, nú ætla ég að gera tilraun til að komast í koju fyrir ½ tólf.  Góðar stundir, meira síðar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband