2.5.2010 | 08:46
29.apríl
Ætli það sé ekki fimmtudagur í dag, er ekki frá því. Dagurinn hófst á gönguferð um garðinn (the Park), upp aðrar hæðir, niður aðrar brekkur en áður, fínt að fara ekki alltaf sama rúntinn. Sá þar ummerki eftir skógarelda sem kviknuðu þegar Hong Kong búar heiðruðu minningu látinna á degi hinna dauðu. Þá hreinsa menn af leiðum ástvina og kveikja í til að hreinsa vel ef ég hef tekið rétt eftir. Auðvitað þarf þessi dagur að bera uppá þurrasta tíma ársins þannig að skógareldar eru óhjákvæmilegir....af litlum neista og allt það.
Bátasmíði, nema hvað til þess var ég nú fenginn hingað, og ekki meira um það í bili. Það var nú einhver vindur í dag og hellirigning inná milli, ég þurfti að vinna utaná bátnum (nú er bilið búið) en það var nú enginn hægðarleikur í vindinum þar sem ég var á lítilli jullu að skrúfa og kítta utaná byrðinginn, jullan ýttist frá í hvert sinn sem ég skrúfaði svo ég þurfti að halda mér fast í kaðal svo ég gæti nú klárað verkið. Bjarki kom heim úr 4 daga ferð til Japan.
Á milli 6 og 7 rölti ég heim í hellirigningu og bílstjórarnir voru svo kurteisir að keyra ekki ofan í pollana nema rétt um það bil sem ég var að fara að beygja upp afleggjarann til Bjarka og Strúllu (heim), þá komu þrír í röð og gusuðu yfir mig volgu vatni, það var semsé ekki til þurr þráður á mér þegar ég kom í kotið en ég held að þetta hafi nú samt verið meira gaman en að taka taxa!
Það var áreiðanlega í kvöld sem við borðuðum á Anthonys Ranch sem er n.k. Westrænn staður, þar fékk ég borgara og bjór. Það er búið að hellirigna meira og minna síðan um hádegi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.