7.5.2010 | 16:37
3.maí
Jæja þá er helginni lokið og brauðstritið tekið við hjá okkur flestum, ég strita fyrir mínu brauði að venju á tvíbytnunni bláhvítu en þó ekki Briggskipinu Blálilja sem eitt sinn var útvarpssaga á Rás1 minnir mig. Þar sem ég er að skrifa þetta á föstudagskvöldi er nú ekki alveg víst að ég muni frá verki til verks hvað ég var að gera en finnst nokkuð trúlegt að það hafi tengst einhvers konar píparavinnu því mikið liggur fyrir af þeirri sortinni. Dagurinn hófst á skokki með Steina og Huldu og ég er nú bara orðinn slarkfær í hreyfingum eftir misvelheppnaðar hreyfitilraunir eins og fyrri blogg bera með sér. Batnandi manni og allt það.
Ajante hjálpari er með mér öllum stundum og hann er ekki svo galinn kallinn sá, maður verður stundum að nota barnaskóla ensku á hann því hann er nú ekki sleipur í enskunni en hann kemur því í verk sem maður biður hann um þó stundum sé ryk- og óhreinindaþröskuldurinn ögn lægri en hjá mér og öðrum sem málið varðar þannig að finished kemur nú stundum aðeins of snemma hjá honum blessuðum. En hann tekur aðfinnslum mínum vel enda ég í fyrsta sæti á vinsældalista hans skilst mér.
Ekki má nú heldur gleyma því að Garðar vann með mér í dag og það verður nú að segjast að það er nú ekki alveg ónýtt að hafa hann innan og/eða utanhandar svona annað veifið. Ég brá mér í Mong kok ferð með Steina og Stjána og auðvitað þurfti ég að kaupa fittings sem síðan féll ekki í kramið hjá Bjarka en meir um það síðar, því ekki tók nú betra við þegar hann fór að versla.
Það var grillað hjá henni Huldu í kvöld eða öllur heldur kveikt í kjúklingum, því Hulda vann og matur brann eins og segir í kvæðinu og greinilegt að hún hefur sloppið alltof vel undan matseld uppá síðkastið og er farin að ryðga enda var hún ekki með bjór og þá heldur ekki typpi svo ekki var von að vel færi. En maturinn bragðaðist vel, hvítvínið var ekki svo slæmt heldur. Ég lét mig hverfa eftir matinn uppá efri hæð að sinna smá erindum, láðist að láta vita af ferðum mínum svo fólk hélt að ég væri farinn heim svo lítið fór nú fyrir mér. Bjarki kom seint um kvöldið og var alsæll eftir Þríþrautarkeppni á Filipseyjum þar sem hann náði þeim undraverða árangri að klára þrautina á undan öllum hinum sem ekki voru á undan honum og þeir voru nú bara alveg 20 talsins, til hamingju frændi.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.