7.5.2010 | 16:50
4.maí
6.30 ! Út að hlaupa, engin miskunn, eftir aðeins tæplega þriggja tíma svefn en það tjóir ekki að liggja í bælinu í einhvern óratíma, það gerist nú lítið með því móti. Upp, í larfa og skó og út eins og engispretta út á engi að spretta úr spori. Fínasta hlaup og Steindór er mennskari en margur garpurinn hér því hann er ekkert að neyða mann í manndrápshlaup þegar brekkurnar taka við, þá er nú bara gengið rösklega og jafnvel spjallað ögn ef það er ekki eitthvað merkilegt í Hlaðvarpinu hjá honum (Podcast). Sveittir og sælir komum við í kot og fengum dögurð. Bjarki kom þar aðvífandi og tafði mig ögn við vinnuna því að hann vildi endilega fá kaffidreytil og skeytti lítt um vinnuákafa minn sem ég þá snarlega reyndi að hemja, temja og salta niður.
Vinna, vinna, vinna og Bjarki Viðar lagði leið sína í innkaupaleiðangur að kaupa fittings (enn einu sinni), hann keypti voðafína fittings eftir listanum frá pabba gamlan en auðvitað passaði sá engan veginn við það sem við ætluðum að púsla honum samanvið. Það er sem ég segi, það er ekki hlaupið að því að vera pípari hér í HK!
Ég er næstum viss að við borðuðum í klúbbnum í kvöld, já ég held það bara og ég fékk mér örugglega einhvern indverskan rétt sem ég fékk leyfi til að tóna niður um einn Chili (styrkurinn er sýndur með Chili myndum), ég fór úr 3 í 2 og það var í góðu lagi og braggðgott með afbriggðum. Komin heim uppúr hálftólf held ég!? Það hefur mögulega verið í kvöld sem ég reyndi að tala við Steinu en það gengur brösulega þessi dægrin þar sem netsambandið er í steik heima í íbúð.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.