7.5.2010 | 17:26
6.maí
Engin heilsurækt í morgunsárið en þeim mun fyrr farið til vinnu.
Þessi dagur var nú ekkert stórmerkilegur held ég, svona frameftir að minnsta kosti og fátt um hann að segja og er hann úr sögunni..... eða nei, ekki alveg.... heilsuræktin lá í leyni rétt hérna megin við kvöldmatinn. Við fórum; fjórmenningaklíkan og syntum mislangt, ég eina 800 metra en hinar eitthvað ögn lengra og jafnvel ekki loku fyrir það skotið að þeir hafi farið hraðar líka.
Matur hjá Pete og Beverly, fínasta fjórrétta austurlensk blanda.
Á eftir, uppáhaldið mitt: Fótanudd og ég steinsofnaði í stólnum. Nuddarinn fann marga staði þar sem hann þurfti að nudda sérstaklega og/eða fara varlega og hnyklaði oft brýrnar og horfði á mig óræðu augnaráði þegar hann nuddaði gömul og ný hnjösk og fann m.a.s. auma bletti sem ég vissi ekki að væru til.
Stilltur strákur sem ég er fór ég síðan beint heim í kot með Strúllu og Bjarka en þegar heim var komið var klukkan reyndar orðin 23.30 en ég lét mig þó hafa það að vaka til svona ca 1 eftir miðnætti svona til að reyna að ná í skottið á sjálfum mér og þá meina ég varðandi fyrirliggjandi verkefni til að forðast nú allan misskilning.
Það hellirignir og þrumur og eldingar raska næturró minni auk þess sem ég gleymdi að slökkva á tölvunni svo að Steina sendi mér skilaboð klukkan 4.30 í nótt og spurði hvað ég væri eiginlega að gera á Skype-inu á þessum tíma, var hún afar byrst í riti (eða þannig).
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.