7.maí

Þrumur og eldingar ennþá og ekkert sprikl í morgunsárið og í raun sátum við heima ég og Bjarki frændi og ræddum ýmsa hluti og ég sinnti Emar málum frameftir morgni en að endingu tókst okkur nú að koma okkur niður í bát til skrafs, ráðagerða og framkvæmda.  Stutt var sú skemmtun því við fórum uppá fastalandið að taka á móti sendingu frá verslunarkeðjunni Wellcome, Ajante fór með góssið um borð en við settumst við borð, í klúbbnum, snæddum þar máltíð og spjölluðum í dágóðan tíma og það var nú bara gott og afslappandi.

Eitthvað varð nú að vinna meira og ég fór því aftur um borð, hjó, reif og tætti til að komast í gegnum vatnsskemmda viði á tveimur stöðum í bátnum.  Í salarkynnum/kytrum starfsfólksins (Crew Cabin) boraði ég eitt gat uppí neðstu tröppuna og fékk 3 fullar fötur af fúlu vatni, föturnar eru reyndar í stíl við íbúana hér, í smærri kantinum en mikil ósköp bunaði þarna niður og er það miður.

Svona ca uppúr 7 í kvöld hætti ég að vinna og fór í að meðhöfunda með henni Steinu fyrir brúðkaup morgundagsins, Víðir bróðir hennar er að fara að gifta sig henni Eyrúnu sinni.  Ljótur skrambi að missa af tækifæri til að ota sínum tota og troða upp með hljóðfæraspili, gamansöng og almennu bulli en þá verður Steina bara að sjá um uppistandið, hún á nú örugglega eftir að hrista það framúr erminni.

Setti inn talsvert af myndum í albúm Hong Kong #3.

Í þessum skrifuðum orðum sit ég flötum beinum í bátnum, ber að ofan, úti á dekki í 27°C og klukkan 01.40 en loks búinn að ná upp blogglausum dögum og býð góða nótt þó að klukkan heima sé aðeins 17.40.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Blessaður og sæll, sérlega gaman að lesa bloggið og fylgjast með ævintýrum þínum þarna austurfrá og skemmtilega myndir!  Eins og venjulega þá lætur sumarið hér á Fróni bíða aðeins eftir sér, hér er eiginlega alltaf þoka þessa dagana með smá undantekningu í gær. 

Þú veist að ef þig vantar handlaginn handlangara með háskólagráðu í bátastússið, þá hefur þú bara samband, ....you know I can work very long........., bulding boats in í hong kong....no problem.  Keep on the good work.  Kveðja Gulli 

Gulli (IP-tala skráð) 10.5.2010 kl. 10:03

2 identicon

heill og sæll Gulli, það er nú gleðilegt að ég nái að stytta ykkur stundir í 1/2 frostinu þarna í Willta Westrinu, það gleður mitt hjarta.  hér hefur nú reyndar ekki sólað mikið en það er alltaf hlýtt og ég alltaf á stuttbuxum og stundum ber ofantil á líkamanum.

Tja, það vantar ekki að næg eru verkefnin hér um borð og alveg þörf fyrir aukahendur, tali nú ekki um ef þær hafa klórað sér í höfði með háskólagráðu og gripið í haus með smiðamenntun :)  Can can eins og þeir segja hér þegar spurt er hvort þetta sé hægt að gera (í búðunum t.d.) eða Can-not, sem líka er gripið í inná milli.  bestu kveðjur, Eggert

 p.s. svo er það skútuleitin maður

Eggert Mar (IP-tala skráð) 11.5.2010 kl. 01:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband