2.6.2010 | 16:01
18.-20.maí
Daginn eftir vöknuðum við endurnærð í svitabaði, röltum okkur til Huldu í morgunverð, þaðan fórum við með henni niður í Central og gerðumst túristar, tókum togvagninn uppí Peak sem er hár tindur uppaf Hong Kongborg þaðan sem útsýni er gott þegar útsýni er gott!! Á leiðinni niður hellirigndi en stytti svo upp í smástund, svona rétt á meðan við komum okkur í nálægð við vinnustað Huldu og í stræti sem er kallað Rat Alley (Rottusund) hvar við settumst niður með öl og tælenskan mat. Rétt sest og þá opnuðust himnarnir á nýjan leik með tilheyrandi eldingum og þrumum. Strúlla bauð okkur að borða hjá sér í kvöld og við sváfum aftur í tvíbytnunni, höfðum það notalegt og kósý um borð við hvítvínssötur og spjall framundir háttatíma.
Göngutúr í morgunsárið, sárið er skrýtið orð, en það var alltént snemma sem við vöknuðum og töltum tindilfætt upp til Huldu í dögurðinn. Þegar við höfðum gert honum skil var okkur, ásamt Starra og Freyju, ekið á brautarstöðina þar sem við tókum lest upp til Lowou í Kína. Í þeim ágæta bæ er moll þar sem prúttað skal um allt sem er til sölu, hægt að gera góð kaup þar ef maður er nógu lunkinn. En mikið ósköp voru þeir nú leiðinlegir og uppáþrengjandi piltarnir og stúlkurnar reyndar líka sem eltu mann og reyndu að fá til að versla af sér allskonar drasl og dót, enginn friður til að skoða og spekúlera. Að loknu prútti hittum við svo Steina og Huldu og Sögu og brunuðum eftir nýrri, nánast bíllausri, hraðbraut til fiskifarmsins hvar við gistum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.