3.6.2010 | 13:29
21. maí
Þá erum við semsé komin til Kína skötuhjúin, í fyrsta skipti. Við sváfum, eins og áður er greint frá, í íbúð í fiskeldisstöðinni sem Steindór á ásamt fleirum, þar fengum við rúm sem við fyrstu skoðun virtist vanta dýnuna í en hún var víst þar en bara alveg skelfilega hörð þannig að við sváfum ekkert sérlega vel og vöknuðum snemma eins og endranær. Renndum í skipasmíðastöðina þar sem Sólon Íslandus er í algerri yfirhalningu, það er afar heitt í veðri í dag, mælar sýndu yfir 40°C en ég er nú ekki sannfærður um að svo hafi verið í raun. Það var fróðlegt að sjá bátinn, hélt einhvernveginn að hann væri lengra kominn en það eru einhver handtök eftir enn. Gamla Kína var síðan tekið með trompi þegar við fórum inní Ganghou og grandskoðuðum það og vorum líka grandskoðuð af heimamönnum sem sjá víst afar sjaldan hvíta menn eða útlendinga almennt. Okkur fannst við vera eins og viðundur því fólk á öllum aldri góndi á okkur í tíma og ótíma. Hello, Hi og How are you sögðu margir og allir voru einstaklega vingjarnlegir. Starri var með okkur og hann er nú sannarlega betri en enginn þegar kemur að því að fá Kínverjana til að skilja hvað við vildum án þess að þurfa að benda og pata í allar áttir. Hann er skrambi lunkinn í kínversku og þau voru mjög hrifin af því að hann skyldi tala málið þeirra. Eitthvað keyptum við þarna á fínum verðum og enduðum í flugeldsölu fyrir Starra. Flugeldar hér kosta nákvæmlega ekki neitt, hann fékk fullan haldapoka fyrr vel innan við þúsundkall íslenskar!! Meðan flugeldakaupin fóru fram röltu 3 ungar skóladömur framhjá (Hi, Hello og fliss fliss), og gengu svo sína leið eða þannig, þær snéru við og vildu endilega láta taka myndir af sér með Starra og flissuðu mikið á meðan. I like you sagði ein þeirra við hinn ljóshærða víking. Um kvöldið gistum við á 5 stjörnu hóteli í einhverjum skóbæ (man ekki nafnið) og herbergin voru 5stjörnu en ekki verður nú sama sagt um matinn og þjónustuna en þetta var nú samt allt í sóma að okkar mati a.m.k.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.