22.-23.maí

Laugardagur.

Bærinn sem við gistum í er semsé þekktur fyrir skóframleiðslu, einn framleiðir botna, annar hæla, þriðji selur skæðið og svo koll af kolli eða fót af fæti væri nú réttara að segja.  Skoðuðum við strangabúðir (leður og rússkinn) þar sem Hulda pantaði efni í bátinn og við keyptum rautt leður á stólana í bústaðnum..Þá er bara að vinda sér í bólstrun í sumar eða haust.  Skoðuðum okkur um í Pinghai, sem er ekki ósvipaður Ganghou en aðeins minna af forviða fólki.  Fórum þaðan til Ganghou á mótorhjólatöxum, röltum þar í einhverja stund og fórum síðan aftur uppá Fiskifarminn, fengum þar leiðsögn um staðinn sem var áhugavert.  Sváfum í íbúðinni á farminum í nótt en í öðru rúmi að þessu sinni og það var miklu betra.

 

Sunnudagur.

Skemmtum Sögu í morgun og fórum svo af stað heim aftur uppúr hádegi, komum við í verslunarmiðstöð (Decathlon) og keyptum þar eitthvað af flíkum, svona íþróttatengdum, auk tveggja bakboka og smotteríis sem okkur vanhagaði um.  Snæddum með Huldu, Starra, Rebekku og Gumma Ralla (rafvirkja) á Outback, virkilega fínt fæði þar. 

Haldiði að það sé ekki kominn enn einn Kópaskerbúinn til Kína og Hong Kong, nú eru þeir orðnir 5 í það heila og það er nú ágætt miðað við höfðatölu !!!  Komin heim ca um hálf ellefu og sváfum í Hulduhúsi þessa nóttina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband