4.6.2010 | 09:54
25. - 27.maí
25.maí
Byrjaði daginn á því að fara með strákunum niður í bát og það teygðist aðeins úr því, Steina gerði sitt af hverju á meðan t.d. beið hún eftir að ég kæmi aftur.
Mong Kok í dag, Á BÍLNUM, eitthvað sem Rebekka treystir sér jafnvel ekki til að gera, röltum þar um, skoðuðum mannlífið og keyptum eitthvert skran á götumarkaðnum, þ.e. merkjavöru, fake allt saman auðvitað. Eftir Mong Kok lá leiðin til Happey Valley og við rötuðum auðvitað beint heim til Rebekku í fyrstu tilraun, mig rámaði nefnilega í aðstæður og sagði við Steinu að við ættum að fara upp eina ákveðna brekku sem var framundan og svo fljótlega til vinstri, það stóð heima og við lentum beint fyrir utan heimili Bekku og Juddy. Borðuðum með henni á Kóreskum stað sem bauð uppá steinasteik, (reyndar á stálgrilli) virkilega gaman og mjög notaleg kvöldstund. Juddy bauð mér í Squash en ég varð að afþakka það, maybe later.
Ókum síðan heim, tókst að sjálfsögðu að hunsa fyrstu leiðbeiningarnar hennar Bekku og skutumst niður í Central Hong Kong en náðum að krafla okkur aftur uppá rétta braut og komumst heim með glans.
26.maí
Í dag ákváðum við að fara að skoða 10.000 Buddha Monestery sem er munkaklaustur í hæðunum upp af Sha Tin, ótrúlegt, 500 tröppur upp (og annað eins niður) og inni í hofinu sjálfu voru 12.800 búddalíkneski ca 15-20sm há og ekkert þeirra alveg eins. Meðfram öllum tröppunum voru síðan munkalíkneski í raunstærð. Þetta var mjög skemmtileg ferð að því undanskildu að við urðum næstum því bensínlaus og á síðustu gufunum duttum við inná bensínstöð og náðum að fylla bílinn og ná niður púlsinum !
Fantagóð afmælisveisla í kvöld því Steini varð 39 ára í dag, afbragðs matur, Fondue, ístertur í eftirrétt og hið magnaða Útvegsspil var síðan spilað til 2 um nóttina. Ekki ómögulegt að rauð- og hvítvín hafi verið á boðstólum og eitthvað af bjór og Coke Zero.
27.maí
Í dag eyddum við tímanum með huldu að mestu, fórum reyndar fyrst með Steindóri og henni í Site Inspection að skoða legu sem þau eru að velta fyrir sér að leigja fyrir bátinn, það var á hinum huggulegasta stað, verð að spyrja Huldu hvað hann heitir. Þaðan fórum við í lítið þorp, Kvang O, þar sem búa mafíósar, forríkt fólk og fátæklingar í sátt og samlyndi, rólegt og kyrrlátt þorp við ströndina, mjög snyrtilegt og þar við bæjardyrnar er dýrasti golfklúbbur HK og það kostar víst einhver reiðinnar býsn að gerast meðlimur þar og ekki bara í peningum heldur líka í formlegheitum.
Aberdeen tók við okkur næst, sigldum þar, svona sightseeing um sund sem var fínt. Leiðin lá þaðan niður í Central (Hong Kong), Snæddum á ítölskum stað, létta máltíð og spjölluðum heilmikið. Steina keypti sér ný gleraugu á ca hálfvirði miðað við heima og svo fór hún og Hulda Þórey í fótsnyrtingu, Steina hafði aldrei farið í svoleiðis. Ég fór í fótanudd á meðan, hef farið í svoleiðis áður. Svo röltum við um bæinn, inní markað, í vinnuna til Huldu, skiptum þar um föt og beint uppá Hotel Conrad Hong Kong og snæddum þar á 5 stjörnu hóteli glæsilegustu máltíð sem við höfum komist í kynni við svei mér þá, endalaust úrval frábærra rétta, glæsileikinn í fyrirrúmi og gæðin líka. Þetta var í boði Rebekku sem hafði gefið mér Gjafabréf á þessa máltíð. Þannig var nú haldið uppá afmæli Steinu og 6 ára afmæli okkar Steinu sem pars. Tókum síðan taxa heim til Huldu og Steina, þar voru þá Bjarki Viðar og Kristrún. Snemma í háttinn enda stefnt á sund í fyrramálið.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.