28.maí

Auðvitað syntum við einhver ósköp í morgunsárið, Steina kom með líka og sýndi það og sannaði svo að ekki varð um villst að hún er ennþá betri syndari en ég þrátt fyrir þrotlausar æfingar sögumanns.  Hef þó það álit á sjálfum mér að mér hafi nú eitthvað fleytt fram (á að vera fleygt fram) en það passar bara svo illa við sund) í sundlistinni en það er nú bara mín skoðun og þarf ekki að endurspegla álit þjóðarinnar.  Hún náði nú að svamla eina 900 metra á meðan ég fór 800 þannig að ekki stakk hún mig alveg af.  Bjarki sagði að hún væri eins og selur og ég vona að hann hafi ekki verið að láta í veðri vaka hvernig honum fyndist hún vera í laginu heldur frekar hitt hversu hraðsynd hún væri, það vona ég allavega því annars verð ég voðalega sár útí litla frænda minn.

Ég man ekki alveg hvað við eyddum deginum í en við hringdum allavega í afmælisbarnið, hana Ólöfu Rún, á Skype-inu og spjölluðum við hana og sungum afmælissönginn fyrir hina 13 ára táningsprinsessu.  Eitthvað kom bjór, matur, hvítvín og knús við sögu þessa dags en förum ekki nánar útí það, gæti bara misskilist.

p.s. borðuðum í Bjarka og Strúllukoti í kvöld.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég átti að sjálfsögðu við sundhæfileika frúarinnar eingöngu. Annars eru selir helvíti lögulegir líka...

Litli frændi (IP-tala skráð) 8.6.2010 kl. 13:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband