31.maí

Að sjálfsögðu vöknuðum við snemma en vöknuðum þó ekki í fæturnar en við fórum á fætur.  Líklega höfum við gert eitthvað afar gott og skemmtilegt í dag, teygt úr okkur, teygt okkur í bjór og teygað í okkur bjór, nú eða vatn!  Fórum með Huldu á rúntinn í Central og náðum í gleraugun hennar Steinu og hún er svona líka glerfín (plastfín því gleraugun eru úr plasti) að það er bara engu lagi líkt, allt annað að sjá hana og hún sér allt annað en hún sá áður.  Var mest hræddur um að hún sæji núna hversu ólaglegur ég væri en þau voru nú sem betur fer ekki svo góð gleraugun nýju.

Borðuðum úti með Bjarka og Strúllu í kvöld á Sushi stað og það var mjög fín kvöldstund og matur góður á borðum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband