1.júní

Síðasti dagur Steinu hér í Hong Kong, þá tekur við kvíði fyrir að láta hana af hendi og senda hana uppá Frón, en það er víst engin undankomuleið.  Við nýttum daginn vel og gerðum ýmislegt skemmtilegt, lágum reyndar í sólbaðsleti uppi á dekki lengi dags og spjölluðum heilmikið til að segja nú örugglega allt sem þurfti að segja áður en til aðskilnaðar kæmi.

Pökkun og samræming pinkla tók drjúgan tíma enda var sitthvað keypt sem þurfti að koma fyrir í töskum og pokum, einhverju komum við á þá feðga Starra og Steindór sem fara heim á morgun.

Það var tregafull stund þegar við svo kvöddumst á flugvellinum, það er eins og við fáum aldrei nóg hvort af öðru, sem er góð tilfinning en gerir þá fjarlægðina ennþá erfiðari.  En, það er bara að setja sig í rétta gírinn til að gera þetta bærilegra.  Að vera fjarri Steinu er bara hluti af jöfnunni, uppi á klakanum á ég líka dætur, fósturdætur, tengdasyni og vini sem ég sakna líka en spurning hvort það sé einhver af þessum hópi sem saknar mín, ég vona það nú eiginlega, jú það hlýtur að vera.  Ég hlakka til að hitta þau öll þegar ég kem heim en sá dagur er ekki ákveðinn ennþá, fer eftir ýmsu.

Kvaddi frúna tilvonandi semsé rétt fyrir 11 að kvöldi og ók síðan heim í myrkrinu með tómleikatilfinningu í hjarta, það hlýtur að þýða að það séu tilfinningar í spilinu.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband