8.6.2010 | 14:55
Annar, þriðji, fjórði, fimmti & sjötti júní
Þá tekur brauðstritið við aftur úr því að Steina er farin af landi brott. Bátastúss með Bjarka í dag, á morgun, hinn, hinn og hinn. Svo fer ég til Kína, læt vera að skrifa mikið um þessa síðustu daga mína í Hong Kong, því þeir voru nú hver öðrum líkir en þó fínir og góðir innan um gott fólk. Sunnudagurinn endaði með grilli með fjölskyldunni um borð og það var ljúft, þar voru reyndar einnig stödd hjón sem eru af erlendu bergi brotin, séð frá Íslandi og Hong Kong.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.