8.6.2010 | 15:26
7.júní
Fórum til Mong Kok, ég og Garðar, báðir með þungar byrðar á baki sem þyngdust eftir því sem leið á innkaupaleiðangurinn, fengum far þangað með Rebekku og Juddy. Lestarferð til Lo Wu eftir hádegi og þaðan með rútuskrifli sem var nú ekki uppá sitt besta, hefur kannski verið það 2005. Ég dottaði nú samt á holóttum, malbikuðum, veginum og hrökk upp með andfælum þegar bílstjóragarmurinn þeytti flautuna, það var eins og hún snéri öfugt og flautaði inní bílinn!!!!! Hann hefur kannski verið að nota hana til að halda sér vakandi, því hann geyspaði eins og hann fengi bónus fyrir hvern geyspa undir stýri.
Vorum settir út í Ping Hai og tókum skellinöðrutaxa þaðan uppá farminn. Fór í smá æfinga-akstur á Vespunni svo að ganga mætti úr skugga um að ég réði við slíkt tryllitæki og útkoman úr því varð að ég væri fær um að höndla gripinn. Því fórum við í lengri túr niður í Ping Hai að kaupa mjöð til hressingar andans. Annars fengum við heljar hressingu andans þegar við fórum í fótanudd, sögumaður, Garðar og Gummi ralli. Aldrei hefur sést þvílíkur fjöldi manna frá Kópaskeri á nuddstofu í Ping Hai og má því segja að við skytturnar þrjár hefðum sett héraðsmet. Stelpurnar sem nudduðu okkur voru helst á því að nuddið yrði þeim mun betra eftir því sem þær skríktu meira og töluðu við okkur á kínversku. Ekki voru þær nú gamlar, svona kannski 17-18 ára og nuddið ekki það fagmannlegasta en óumdeilanlega það skemmtilegasta til þessa. Þær voru alveg bit á tvennu, fótastærðinni og hárunum á leggjunum, alveg uppað hnjám, horfðu sérstaklega á hnén, það vaxa bara ekki hár á fótum kínverskra karla þannig að við vorum eins og furðuskepnur frá öðrum heimi þarna inni.
Heim renndum við slysalaust og gengum til náða karlarnir, svona hver á eftir öðrum.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.