8.6.2010 | 15:27
8.júní
Fyrsti snöfldagurinn í Kína, það var ýmsu að kynnast og margt að fást við en ég fer nú ekki að orðlengja það frekar enda getur slíkt orðið leiðigjarnt. Hér í slippnum er allt morandi í kínverjum sem tala við okkur á kínversku og við svörum á íslensku, þeir skilja það alveg jafnvel og ensku og allt gengur þetta nú einhvern veginn. Ég fer á vespu á milli heimavistarinnar og slippsins og það er apparat sem ég hef nú ekki komist í snertingu við áður, þetta er nú bara gaman en ég lenti í smá óhappi á leið úr hádegismat og er ansi aumur í vinstri ökklanum en það lagast nú. Ég stoppaði nefnilega til að hirða upp stefnuljós sem hafði fallið af hjólinu hjá Garðari föðurbróður en fipaðist duldið því að afturbremsan er full slöpp svo að ég setti niður fótinn og það var skrambi sárt og svo endaði ég hálfur útí skógi en var á hjólunum, stefnuljósinu náði ég þó.
Maturinn hérna hefur verið sagður frekar dapur en mér finnst hann barasta ágætur, borða ekki mjög mikið en það á nú vonandi eftir að koma sér vel þegar horft er til vaxtarlags míns sem samanstendur af stinnum vöðvum og stórum maga auk ofurlítils síðuspiks sem á tyllidögum er kallað Ástarhöldur.
Athugasemdir
Sæll og blessaður, ertu ekki lengur í Hong Kong ?
Gulli (IP-tala skráð) 9.6.2010 kl. 10:26
sæll vertu og margblessaður, nei nú er ég kominn til Kína að vinna í bátnum sem Hulda Þórey systir Bjarka á með manni sínum Steindóri Sigurgeirssyni (og Rósu) frá Patró. Þar er ég í fullu starfi frá 7 30 til 17 40 (komin heim um 18 á Vespunni). Þetta er barasta fínt. Báturinn er í slipp á svæði þar sem lítið er um vestræna menn þannig að við erum eins og aliens hér :)
Eggert Mar (IP-tala skráð) 9.6.2010 kl. 10:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.