13.6.2010 | 13:34
Ótilgreindir dagar, enda 12.júní
Það er reyndar verst hvað það verður hroðalega sleipt á leirveginum niður að slippnum þegar það rignir og eftir rigninar, þá er nú betra að fara sérlega varlega svo ekki fari nú illa.
Það er sérlega gaman að vera innan um alla þessa Kínverja hér í slippnum, þeir tala bara við mann á kínversku og við spjöllum á móti á íslensku en þó eru nokkur orð farin að síast inn (þ.e. kínversk, þau íslensku voru til staðar) svo að maður getur skilið eitt og eitt orð og þeir skilið mann á móti. Annars er hér túlkur í fullu starfi svo ekkert misskiljist nú. Hér gengur allt vel og báturinn tekur á sig nýja mynd á hverjum degi, þó að ekki sé nú um neinar stökkbreytingar að ræða í myndbreytingum.
Það er dulítið sérstakt að fylgjast með matarafhendingum við grunnskólann hérna í Ganghou, mötuneytið er öðru megin við aðalveginn og skólinn hinum megin. Þegar við ökum framhjá á morgnana eru starfsstúlkur búnar að koma fyrir matarkyns við rimlahlið eitt mikið við skólann, þar hópast svo krakkarnir saman og fá skammtinn sinn, þetta minnir eiginlega á fangelsi, ögn sérstakt eins og áður segir en þó svo eðlilegt einhvern veginn.
Kvöldin eru róleg hérna, við sitjum stundum saman og spjöllum og sötrum öl úr baukum, nú eða einhverja aðra drykki, við Garðar höfum líka verið að teikna upp ákveðna hluti í bátnum til að geta skýrt betur út fyrir öðrum hvað þeir eigi nú að gera. Í gærkvöldi (laugardagskvöld) fórum við Gummi Ralli á pöbbinn sem er hér á farminum, falinn innan um eldiskerin, hann er í leiðinni Kaupfélag með smávarningi til sölu. Þar drukkum við úr ölflöskum, rifjuðum upp sögur af fyrrum samferðamönnum úr héraði og ég lék pool eða billiard á frekar ósléttu borði, en það skipti einhvern veginn engu máli, það var aukaatriði í raun.
Sunnudaginn 12.júní rigndi þegar við lögðum íann en stytti svo upp og var fínasta veður í allan dag. Það er gott við matinn hérna að maður er aldrei pakksaddur, heldur bara mettur og það er mín von að það komi til með að hafa áhrif á holdafar mitt þegar fram í sækir, ekki frá því að eitthvað smálegt sé farið að láta undan á þeim bænum en nánar um það síðar.
Ekki má nú gleyma að geta þess að Erla Gerður útskrifaðist í dag, laugardag, sem grafískur hönnuður og ég sendi henni að sjálfsögðu kveðjur á minn hátt. Til hamingju Erla Gerður.
Á leiðinni heim í kvöld skelltum við Garðar okkur á Dumplings staðinn okkar, selur Kínamat, snæddum þar og sátum svo og spjölluðum í rólegheitunum sem var hið besta mál. Síðan rak ég hausinn inná rakarstofu og þar var ég rakaður í bak og fyrir, bæði hár og skegg sem var eiginlega orðið full villt. Garðar kom svo á eftir og lét þvo á sér hárið, nudda hársvörðinn og klippa sig, höfuðnuddið sagði hann hafa verið einstaklega notalegt og gott. Ég klikkaði á þessu en læt örugglega nudda höfuð mitt síðar. Herlegheitin voru nú ekki dýr, allt þetta ofantalið kostaði 550 krónur íslenskar!!
Athugasemdir
Mikid erud thid duglegir allir, vid hugsum hlylega til ykkar hedan ur HK.. h
HUlda (IP-tala skráð) 15.6.2010 kl. 16:55
það skýrir hitann hérna, þurfið nú ekki að hugsa svona hlýlega til okkar (en takk samt)...... það bogar af manni svitinn öllum stundum þó maður standi kyrr, sem gerist aldrei því við erum svo duglegir
Eggert Mar (IP-tala skráð) 16.6.2010 kl. 16:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.