21.6.2010 | 13:34
19.júní
Kvennadagurinn er runninn upp, bjartur og fagur og voru mikil hátíðarhöld hér í Kína vegna þess.....eða ekki, það finnst víst engum Kínverja það merkilegt þó að íslenskar konur hafi fengið nóg af því að vera bara konur 1975, mætti ég þá heldur biðja um þá gömlu góðu daga þegar bara karlar voru í buxum en konur í fínum pilsum og ólu upp börn og héldu hús fyrir karla sína og gesti.... ó sú var nú tíðin, nóttin var sú ágæt ein og allt það.
Í dag er laugardagur og þá er nú til siðs að gera vel við sig í mat og drykk og það gerðum við svikalaust, ég grillaði stærðar nautavöðva og þeir urðu allir medium rare eða þar um bil og sérlega bragðgóðir þó að gárungarnir segi að húsbóndinn á þessu heimili þurfi ekkert krydd því að pylsurnar séu allar kryddaðar hjá kaupmanninum á horninu.
Við sátum semsé öll og spjölluðum saman yfir matnum og eftir hann, Við vorum: Ég, Gummi, Jói, Sigga, Pasqual og Mamadu og svo Eysteinn litli, sonur Jóa og Siggu. Gaman að heyra Mamadu, sem er frá Senegal, lýsa áhyggjum móður sinnar á því að hann væri ekki enn búinn að ná sér í konu og gifta sig, hún hringir reglulega í hann og ber þetta í tal, er víst logandi hrædd um að hann nái sér í kínverska. Trúin þeirra segir að hafi þeir efni á því að gifta sig um tvígugt beri þeim að gera það en hann er 33 eða svo og enn ógiftur. Sagðist nú reyndar vera að velta því fyrir sér að skreppa heim í haust, skoða markaðinn og gifta sig. Hjá þeim tekur þetta ferli, að finna konu, verða ástfanginn og gifta sig ekki nema viku..... en það er nú ekki víst að orðið ástfanginn sé til í Senegal því að hann orðaði það þannig að nægjanlegt væri að finna það út með spjalli í 2-3 daga hvort ykkur líkaði við hvort annað og ef svo væri þá stæði ekkert í vegi fyrir því að giftast......sinn er siður í landi hverju.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.