20.júní

Í dag er sunnudagur, veðrið klukkan 6; Ganghou, gráð, skyggni 2 kílómetra, loftþrýstingur 1145 millibör, hækkandi, úrkoma í grennd, hiti 32 stig.

Innkaupaleiðangur til Shenzhen fyrir Farminn, fór með Jóa og Siggu þangað í bíl.  Eftir að við komum þangað fórum við Sigga og Eysteinn á röltið á torg eitt þar í bæ, fékk mér í fyrsta skipti Starbucks kaffi.  Kíktum svo á markaðinn, keypti þar nokkur gleraugu og síðan eina magatösku og mokkasíur.  Svo fórum við Jói í B&Q að kaupa málningavörur og sitthvað annað.  Komst svo á BSK (BSÍ þeirra Kínverja) rétt fyrir 5 og náði rútunni til Pinghai, þangað sem ég var síðan sóttur af starfsmanni á farminum.  Svo tók ég það róleg það sem eftir lifði kvölds, horfði á Harry Potter í tölvunni og dottaði þess á milli, talaði síðan heillengi við Steinu á Skype og sofnaði svo uppúr 1 um nóttina.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband