21.júní

Lífið gengur sinn vanagang og Kínakallarnir hafa greinilega fengið eitthvað gott um helgina því það lá sérlega vel á þeim í dag, þeir reyttu úr sér brandarana og hlógu manna mest sjálfir, mest af þessu voru neðanbeltis brandarar sýndist mér og svo hafa þeir mjög gaman af því að gera grín að því hvað næsti maður sé nú vitlaus, eða þannig skiljum við þetta allavega.  Svo voru þeir nokkrir með bendingar um að við ættum nú að drífa okkur í bæinn og lyfta okkur upp fatalausir, það var nú ekki hægt að misskilja því að þeir bentu á mig, sögðu síðan „Ganghou“ og bjuggu til hring með vísifingri og þumalfingri vinstri handar og læddu vísifingri hægri handar inní þennan hring.... þeir hlógu og hristu hausinn þegar ég gólaði: Búhá, búsjé og kemur ekki til greina.  Við höfum hérna einn Long sem er lítill stubbur, einn Wang, Dengsa og Deng,  Ló, Zhen, Kaka, einn Ladda (líkist Ladda í Kínverjagerfinu) og svo nokkra aðra sem ég man ekki nöfnin á, allt í allt yfir 20 kallar.

Við Gummi skelltum okkur á núðlustaðinn okkar í kvöld (gerum það gjarnan þegar við erum seinir fyrir úr bátnum), í kaupfélagið, keyptum nauðsynjar og jógúrtdrykki (nauðsynjar eru víst bjór).  Kassi af bjór, 4 jógúrtdrykkir, einn tepakki og tveir sleikjóar kostuðu 1730 íslenskar og síðan kostuðu tveir stærðar-núðluskammtar með eggjum og kjöti, 10 hálfmánar með kjötfyllingu ekki nema 13 RMB sem er ca 200 krónur og við urðum báðir pakksaddir, Gummi náði ekki einu sinni að klára sinn skammt.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vildi nú bara kvitta fyrir mig og láta vita að ég fylgist með verkinu af mikilli aðdáun á myndasíðunni.  Það er frábært að sjá hversu vel gengur.  Er að setja fullt af fittings og öðru dóti sem ég fann hér úti í geymslu í dall og sendi ykkur með næstu ferð.  Einnig eru hér hurðastopparar og líka svona skáphurðatappar til að loka/læsa (man ekki hvað þetta heitir), ef ykkur vantar. 

 Látið vita ef komið er nærri því að setja upp borð að aftan, þ.e. tekkborðin, ég er með þau klár þegar þörf er á. 

 Svo, ef Þú getur komið með okkur Steindóri í smá eldhúsinnréttingarleiðangaur eftir helgi þá væri það nú svakalega gott. 

 Er búið að finna lausn á límþrifum?

Kossar og kveðjur,

h

Hulda (IP-tala skráð) 22.6.2010 kl. 16:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband