Skrif hefjast að nýju eftir eftir langa ritstíflu

Nú fer að hefjast nýr kafli í blogginu og þar sem ég hef fengið ítrekaðar „kvartanir“ yfir skrifleysi ætla ég að reyna að standa mig betur framá vetur.  Þetta hefur m.a.s. gengið svo langt að ein manneskja vildi senda mér reikning fyrir að fara oft erindisleysu inná bloggið í leit að nýjum færslum og/eða myndum, hafði víst eytt drjúgum tíma í það og tími hennar dýrmætur.

Nú er ég semsé kominn aftur til Kínaveldis og verð þar um einhvern tíma og sendi ykkur línur annað veifið á blogginu og það gæti vel verið að ég byrjaði á því að tæpa á því sem á daga mína dreif á Íslandi þennan ríflega hálfa mánuð sem ég dvaldi þar um daginn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband