5.9.2010 | 11:08
Sunnudagur og svo framvegis.
Mánudagurinn byrjaði vel, spjallaði í dágóða stund við Steinu og leið inní daginn með bros á vör, tilbúinn í Kínverjana. Ágætis veður, svona hlýtt og notalegt, sól skín í heiði, fuglar syngja, krybbur hávaðast og Kínverjar þeyta flautur sínar til að yfirgnæfa nú örugglega allt saman.
Ég er bara eins og ég er..........og þrátt fyrir grínagtuga hegðun er tekið mark á mér.....og það sem meira er.....afköstin eru í fínu lagi hjá köllunum mínu, kannski er því að þakka að ég glettist við þá í tíma og ótíma???? Það held ég nú og sei sei sei.
Á þriðjudagskvöldið heimsóttum við Pasqual, eða Pasakal eins og innfæddir segja, þorpskrána í 600 manna þorpi rétt við farminn. Við fengum bestu stólana undir rassinn á okkur og svo var byrjað að skenkja tei í pínulitlar skálar og gekk svo lengi vel. Að lokum var skipt yfir í bjórinn sem var svo hellt í glös á stærð við 1 ½ desilítramál, svo skálaði hver við annan og ef einhver skálaði við þig þurfti ég og sá að drekka en ekki aðrir, fór þá eftir því hvað sá sagði við skálunina hvort því fylgdi lítill sopi eða Skál í botn, oftar var það nú skál í botn. Eftir hvern sopa var síðan fyllt á glösin jafharðan. Þarna sátum við ein 10 við lítið borð, húsbóndinn færði okkur soðinn, þurrkaðan smokkfisk og perur og otaði sígarettum í hvern sem vildi og hina líka. Ætli það láti ekki nærri að 20 bjórflöskur hafi legið í valnum og verðið, með matnum, var svona ca 1.500 íslenskar. Þetta var hin skemmtilegasta kvöldstund og gaman að því hversu höfðinglegar móttökur við fengum.
Garðar hefur líklega reynt að útskýra fyrir hinum kínverska David, túlkinum okkar, hvað hann væri m.ö. að fara gera á Íslandi því hann spurði mig (David) og var mikið niðri fyrir hvort það gæti verið að bændur á Íslandi færu einu sinni á ári á bak hestum sínum og riðu um allt týnandi upp skít upp af jörðinni og söfnuðu honum saman? Þetta átti víst að gerast að hausti til skv. upplýsingum frá bóndasyninum Garðari. Ég kannaðist nú ekki við þessa skítaleitir íslenskra bænda en lagði nú saman tvo og tvo og fékk það út að Garðar hafi útskýrt fyrir honum (á ensku) að bændur færu á færleikum sínum Looking for sheep en David skilur stundum ekki alveg allt og hefur heyrst að hann hafi sagt shit sem er náttúrulega skítur á móti því að sheep eru rollur.....Þannig liggur í því og sumir austurlandabúar segja einmitt shít og þannig getur shíp hljómað eins og shít. Það er nú annars áhugavert að velta því fyrir sér hvernig skítur yrði dreginn í dilka í réttunum og raðað niður á bæina.......Jú, (þef þef þef), þetta er úr Surtlu hans Jóns á Völlum, ekki ber á öðru rýjan mín.
Ég er semsé, eins og áður segir, einn í koti þessa dagana og hef því nægan tíma til að lesa og skrifa, geyspa og gapa og bíða eftir hátta- og/eða fótatíma. Velti ýmsu fyrir mér en set það ekki endilega á bloggið mitt enda held ég að fólk hristi nægjanlega mikið hausinn yfir því sem ég skrifa þó að ég fari nú ekki að bera á borð það sem ég ekki skrifa, hvernig sem það gengur nú upp og kemur heim og saman.
The steel guy eins og við köllum hann spurði mig í dag með aðstoð túlksins hvort ég gæti staðfest þær sögusagnir að forsætisráðherran okkar væri lesbía!!!! Ég kinkaði kolli og sagði að það væri alveg rétt. Ég veit ekki hvort hann David litli jafni sig nokkurn tíma á þessum fréttum, hann spurði mig hvernig Íslendingar gátu látið þetta gerast, þetta var algerlega ofvaxið hans skilningi og hann æjæjæaði sig í bak og fyrir, hristi hausinn og var alveg miður sín. Í augum Kínverja verður þjóðarleiðtoginn að vera nánast fullkominn og þetta fannst honum afar langt frá fullkomnun...... Þar hafiði það.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Við erum voðalega stolt af þér, gengur frábærlega! Lítur út fyrir að ég komist í fríið með mömmu!
knús og kossar frá HK.
ps. viltu eitthvað...?
Hulda (IP-tala skráð) 5.9.2010 kl. 12:20
gott gott að heyra Hulda. Ég læt þig ekki missa af fríinu ykkar mæðgna, ótækt með öllu. Knús í hús héðan líka.
Vantar eitthvað???? svo sem ekkert nema morgunkorn og svo væri nú gott að fá Carlsberg eða álíka góðan bjór til að leysa Tsingtao af um stundarsakir.....það yrði heilmikil tilbreyting í því
Eggert Mar (IP-tala skráð) 5.9.2010 kl. 12:55
Minn maður alltaf flottastur og bestur :-)
Gaman af þessari "skítaumræðu" ykkar félaga :-)
Steina (IP-tala skráð) 5.9.2010 kl. 16:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.