12.9.2010 | 12:12
Allt í þessu fína
Í einni ferðinni rak ég augun í konu sem sat á hækjum sér við að reyna að kenna litla stráknum sínum að pissa á tröppurnar fyrir utan húsið. Eitthvað var stráksi nú tregur til og þá sló hún á typpið á honum með löngu mjóu priki, líklega hefur það átt að hjálpa honum til að læra þessa kúnst en ég hélt að svona væri nú bara ekki til lengur. Samskonar aðfarir sá ég síðan í Pinghai nema hvað þar var verið að reyna að fá krakkann til að vera kjurr á sínum stað. Sumir litlu stubbanna eru í botnlausum buxum svo að auðveldara sé að láta þá pissa/kúka útum allt, afar þægilegt það.
Það gengur annars allt vel í Sóloni Íslandus þessa dagana og eins gott þar sem þessu á að vera lokið um mánaðarmótin næstu, allir kallar kátir og konurnar líka. Málarinn á eina konu sem hjálpar honum og tekur svo til annað veifið líka, Dengsi fékk sér svo kærustu eftir að hann skildi og finnst (ef marka má David) vissara að hafa hana bara með sér í vinnuna, eitthvað hljóp sú gamla hans útundan sér!! Skondið að David sagði að Dengsi hefði bara tekið þá sem vildi hann, ekki endilega þá sem hann vildi....Wang er víst líka á biðilsbuxunum en gengur illa þar sem engin vill hann.
Nýi eigandi slippsins er að gera við vegarslóðann niður að slippnum og hann hefur bara aldrei verið verri, fór úr því að vera slæmur, yfir í verri og þarnæst í það að vera herfilegur. Tilviljanakenndur mokstur moldar inná veginn og yfirklór með beltagröfu gerir bara illt verra og nú má maður nú bara teljast heppinn að fara ekki flatur a.m.k. einu sinni á dag, sérstaklega þegar rignir, þá fer allt í svað og einkar erfitt að halda hjólinu í réttri stefnu hvað þá á réttum kili.
Í gærkvöldi, laugardagskvöld, skruppum við Pasqual, Mamadou og hálfgerður túlkur á The International Bar í litla þorpinu. Sama kátínan þar og jafnþétt ausið í litlu glösin en þau urðu færri núna en í fyrra skiptið. Ágætt að fara svona afsíðis því þá síast inn kínverskan smátt og smátt, verst hvað ég er gleyminn þegar ég ekki skrifa niður. Mamadou er til dæmis fínn í kínversku, hann er frá Senegal en hefur verið hér í nokkur ár.
Það skiptast á skin og skúrir, eða hellidembur eiginlega þessa dagana. Eitt kvöldið í vikunni voru afar tilkomumiklar eldingar í nágrenninu og við sátum úti í glugga, ég og Jóhannes og fylgdumst með dýrðinni í langan tíma, kannski get ég sett inn myndir fljótlega því ég tók nokkrar á vélina hans, mín nam þetta engan veginn, því miður.
Allt í þessu fína frá Kína
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Ég set nú bara inn athugasemd til að skamma vini þína og ættlingja sem hljóta að vera að lesa bloggið þitt og ættu að vera að gleðja þig með kommentum! Skamm skamm vinir og ættingjar, gerist sýnileg!
Hulda (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 15:01
Ég skammast mín ekkert því ég tala við Eggert á hverjum degi á Skype og ef ég kommentaði hér líka þá yrði hann bara leiður á mér :-) En ég er alveg sammála þér Hulda að það mega ýmsir aðrir taka þetta til sín og segi ég því bara líka skamm skamm eins og þú !
Annars er það að segja um bloggin hans Eggerts míns að þau eru mjög skemmtileg og ég á það til að lesa þau oftar en einu sinni yfir hvert. Það lætur honum einhvernveginn svo vel að koma hugsunum sínum á framfæri í rituðu máli, reyndar mun betur en í töluðu máli í sumum tilfellum :-)
Áfram Eggert...............
Steina (IP-tala skráð) 13.9.2010 kl. 22:25
Heyr heyr frænka, ég hvet alla sem lesa bloggið mitt að: Í fyrsta lagi að kommentera og í annan stað að senda mér tölvupóst um hvað helst sé að frétta af þeim, hvað þau séu að bralla eða bollaleggja yfirhöfuð......yrði magnað ef þetta gæti orðið "gagnvirkt" eins og það heitir á nútímamáli. Endilega sýnið viðbrögð, það kætti mig kæru vinir og ættingjar.. kær kveðja, Eggert
Eggert Mar (IP-tala skráð) 14.9.2010 kl. 14:27
Ég les sko alltaf en ég játa að ég er afar slöpp í að kommenta! Núna bæti ég úr því :) Gott að heyra að allt gengur vel, við höfum ekkert getað talað saman á skype ! Kannski aðallega vegna tímamismunar..sendi riiiiiisaknús og koss í gegnum tölvuna í bili, sakni sakn. Ásdís
Ásdís Guttormsdóttir (IP-tala skráð) 15.9.2010 kl. 14:28
Ég tek þetta til mín, hef alls ekki kommenterað bara notið lestursins...............en maður lætur nú ekki skamma sig aftur fyrir svona svo ég þakka kærlega fyrir skemmtilega lesningu kæri vinur. Ég er líka alveg viss um að það lesa margir þó það heyrist ekki mikið í fólki, það er svolítið líkt Landanum (ekki í fljótandi formi). Hafðu það ávalt sem best og haltu húmornum upp þarna í Kína:-)
Kv. Sigrún
Sigrún Kristjáns (IP-tala skráð) 17.9.2010 kl. 16:44
Kvitt, var loksins að gefa mér tíma að kíkja á bloggið eftir að hafa allveg "gleymt" að kíkja frá því þú fórst til Íslands! Alltaf jafn gaman að lesa bullið í þér :-)
Kveðja,
Hildur
Hildur (IP-tala skráð) 20.9.2010 kl. 17:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.