Áfram veginn á vespunni ek ég, nema þegar ég fæ far í bíl !

Hvar var ég nú staddur síðast þegar ég bloggaði?  Aha, var að skrifa um veðrið og væntanlegar myndir..... veðrið hefur lítið breyst og myndirnar ekki enn komnar inn, það hefur að vísu komið einn Typhoon eða fellibylur en hann gerði nú lítinn usla nema hvað úrkoman breyttist í hellidembu á tímabili og Kínverjarnir kvörtuðu ógurlega yfir því að þurfa að strita í rigningu, þeir eru víst ekki vatnsheldir eins og alvöru víkingar.  Kínverjar þola hvorki rigningu né sól og því ættu þeir að eiga heima á Svalbarða þar sem sjaldan rignir og sólar gætir ekki í langan tíma..... furðulegt með þjóð sem býr við sólskin, hátt hitastig og rigningu í tíma og ótíma að vera svona fötluð að vera hrædd við rigningu og sól.  „You Icelandic men are not afraid of the rain“ sagði Davíð við mig um daginn þegar skúrir gengu yfir og landar hans urðu lémagna af skelfingu og verklausir hver um annan þveran.

Merkilegur skrambi hvað hnjösk eru nösk að þefa mig uppi, eða ég þau.  Ég var í mestu makindum að afrétta nokkra hornalista úr Eik þegar ég fékk þá flugu í höfuðið að ydda á mér þumalinn með heflinum en þar sem mér var nú kennt forðum að beina aldrei átaki í átt að hefli eða sagarblaði þá var ég nú barasta að færa hendina á milli, en fyrir leti sakir lyfti ég henni ekki nógu hátt og rakst hún því (ekki öll!!!)  í hefilblöðin.  Afraksturinn af þessu varð sá að ég breytti fingrafarinu til frambúðar, heflaði mig innfyrir skinn, blóðgaði mig í leiðinni svo ég þurfti umbúðir.  Steindór batt um sárið með fínu sárabindi, vafði svo málningarlímbandi utanum og sagði svo að hann héldi að ég ætti að kunna á þetta verkfæri, ég játti því en játaði að ég hefði mögulega verið ögn annars hugar og ekki gætt mín nógu vel.  Jamm og seisei, svona er nú líf mitt í hnotskurn, eintóm hnjösk, smá og stór og kemur líklega engum á óvart lengur að ég skuli skeina mig (ekki skeina MÉR heldur fá skeinur) annað veifið.

Þar sem ég læt nú gamminn geysa á þessum ritvelli um sjálfan mig að mestu leyti en skil ýmislegt útundan væri nú gaman ef þú sem lest þetta myndir eyða smá tíma í að skrifa komment á síðuna eða það sem væri enn betra, senda mér email á eggert@emar.is með fréttum af þér og þínu, það þætti mér vænt um.  Ég er svo upptekinn af sjálfum mér og mínum afrekum að ég gleymi gjarnan að spyrja frétta af þér, fyrirgefðu það.

Ég hef verið iðinn við kolin eða gösin/gasið uppá síðkastið.  Grill stendur hér úti fyrir bæjardyrum og það hefur verið tekið til kostanna, mér hefur lánast í nokkur skipti að grilla hreint ágætis steikur, nú síðast í kvöld þegar lítil rifjasteik og læri voru grilluð; hryggurin Salt og Pipar en lærið Tandoori, Hvítlauks.  Aldeilis úrvalskvöldverður, toppaður með rauðvíni og svo ferskum ananas í eftirrétt.  Svo gerðust undur stór (reyndar fyrir grillið) ÉG VASKAÐI UPP!!!!!  Þjónustudaman er í fríi eins og aðrir í kringum The Mooncake festival og því hafa diskar og annar borðbúnaður hlaðist upp.....Mér var ekki til setunnar boðið þegar aðeins tveir diskar voru hreinir og Steindór vildi heldur að við 4 borðuðum í hollum frekar en að vaska upp......Ég vona að ég eigi ekki eftir að upplifa uppvask með eigin höndum í bráð, það er alger „party killer“ og ég þurfti áfallahjálp en fékk ekki og líður því alveg skelfilega og get ekki á heilum mér tekið, hef svo sem sjaldan getað gert það því ég hef svo oft verið slasaður í gegnum tíðina.  Ég styð heilshugar uppvask annarra en skrifa ekki undir neinar stuðningsyfirlýsingar sem  hníga að mögulegum uppvöskum minna handa..

Í gær (22.sept) var MOONCAKE festival sem er árlegur viðburður og almennur frídagur en það unnu allir samt því Steindór vildi engum gefa frí því mikið liggur við að klára knörrinn, en bauð í staðinn tvölfalt kaup og 100 RMB á mann að auki og 3 bjórkassa á hópinn,

erfitt að hafna slíku kostaboði.  Held þó að þetta hafi bara átt við um Kínverjana hahaha.  Það var hinsvegar tekið af okkur loforð um að við kæmum, ég, Garðar og David til þeirra eftir vinnu, borðuðum og drykkjum með þeim í tilefni dagsins og við þáðum það, þó að það færi nú svo að ég komst bara einn.  Ástæða þess var sú að á leið heim í hádegið beygði einhver dama á hjóli fyrir Garðar svo að hann varð að taka snögga beygju og auðvitað féll hann fyrir henni og datt kallanginn í götuna og hruflaði sig, fékk nokkrar skurfur á vinstri fótinn en ljótan og djúpan skurð á olnbogann og þurfti því að fara til Húídjó á spítala að láta sauma sig saman, David fór með honum svo hann rataði nú örugglega.  Ég fór semsé einn og borðaði mat sem kallarnir sjálfir brösuðu og drakk með þeim í ca 1 1/2 tíma, kjaftaði við þá og þetta varð hin mesta skemmtun, allir voðalega kátir og sumir urðu svo drukknir að það vakti undrun að sjá þá í vinnu í dag....2 þeirra voru nú reyndar afar slappir en létu sig hafa það.  Ég er nú ekki frá því að ég hafi nú orðið drukkinn líka því það er afar ójafn leikur að vera 1 á móti 15 Kínverjum sem skála við þig í tíma og ótíma og fylla í glasið jafnharðan aftur.  Að neita að skála jafngildir ókurteisi og ekki vildi ég nú vera ókurteis við þessa bráðhressu og gestrisnu vini mína þannig að ég fékk víst alveg nægan skammt af Bídjó, Húnjó og Brandy… Bídjó er bjór og Húnjó er rauðvín.  Garðar og Davíð sóttu mig svo um átta leytið og ég fór beint í bólið, vaknaði klukkan sex morguninn eftir……dagurinn fram að hádegi var nú pínu erfiður en svo leið úr mér þynnkan og ég komst í gírinn.

 

Nú hef ég verið að setja í gler í nokkra glugga og nota heilmikið kítti, svart og ávanabindandi, eða allavega álófabindandi því hendur mínar, fingur og fætur (auk fata) eru öll útötuð í svörtu kítti þannig að nú skulda ég Steindóri allavega 1 túbu af Sika 296 en á móti kemur að ég þarf ekki plástra því það er ekki einu sinni hægt að skera, saga eða hefla í gegnum þetta fína kítti…. Góð meðmæli það, næstum eins gott og kíttið frá Pétri Þorgríms í Einari Á !!!

 

Nú er ég búinn að blogga 22.188 orð síðan ég lagði uppí mína fyrri Hong Kong og Kínaferð og fer örugglega að fá sinaskeiðabólgu ef ég fer ekki að leggja frá mér lyklaborðið og þar með tölvuna……

 

Hér skiptast á skin og skúrir…..nei, búinn að skrifa þetta, óþarfi að vera að endurtaka það sama aftur og aftur, óþarfi að vera að endurtaka það sama aftur og aftur, óþarfi að vera…..já, gott í bili, bless.

 

p.s. Kommentið greyin mín.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig förum við að því að fá þig inn í landið aftur með nýtt fingrafar, það gæti nú orðið þrautinni þyngri :-)

Hlakka til að fá að bragða á öllum kræsingunum sem þú ætlar líklega að elda fyrir mig þegar þú kemur heim, ekki getur þú leynt þessum hæfileikum fyrir mér ástin mín ! Ég skal hjálpa þér að vaska upp ef þú kemst i þrot.

 Bið að heilsa, knús og kossar

 Bið að heilsa, knús og kossar

 Bið að heilsa, knús og kossar

 Bið að heilsa, knús og kossar

Steina (IP-tala skráð) 25.9.2010 kl. 23:49

2 identicon

Æj viltu nú fara að hætta að slasa þig! komið gott í bili allavega.

Eitthvað er nú farið að bóla á elliglöpum hjá þér góði því að þú skrifar þessa færslu 25.sept en segir samt í gær(22.sept)! hmmm

Við verðum svo að finna skype-tíma :)

Love

Ásdís Guttormsdóttir (IP-tala skráð) 26.9.2010 kl. 03:24

3 identicon

Alltaf gaman að lesa fréttirnar af ykkur og skoða myndirnar, sýnist verkið ganga vel en ekki endilega örugglega þegar maður skoðar slysatíðnina hjá ykkur frændum ! Er Steindór ekkert að lenda í svona vespuáföllum og fleiru?

 Allt gott héðan, við erum komnar nuddaðar, stroknar og nýslegnar heim frá Phuket í Tælandi, ég, Hulda, Saga, mamma, Jóhanna, Strúlla og Bjarki litli.  Bjarki fékk facial sem ég er ekki viss um að megi segja frá svo þú heldur því fyrir sjálfan þig.  Ég er svo að fara til Nýja Sjálands á föstudaginn í brúðkaup og áfram til Ástralíu í sextugsafmælisferð svo það verður lítið um viðveru í Hong Kong á næstunni.  Stoppa bara eina viku og held þá áfram til Evrópu í vinnuferð.....

nóg að gera semsagt og eitthvað líður lengra þar til ég sé þig næst en skyrturnar þínar eru heima hjá mér ef þú vilt fá þær.

 kv,

Bekka

Rebekka (IP-tala skráð) 28.9.2010 kl. 10:22

4 identicon

Ja það verður kannski sagt um þig eins og Steingrím Hermannsson forðum þegar hann sagaði framan af fingri, "du er ikke med fulle fem".  Heyrðu já og passaðu þig á uppvaskinu það er stórhættulegt, nægar eru nú hætturnar hjá þér fyrir í knörrinu.  Þú mættir alveg setja inn fleiri myndir á bloggið, af bátnum, umhverfinu og fólkinu.  Héðan af Fróni er allt ágætt að frétta, hausið er skyndilega komið óumbeðið, en samt á áætlun held ég.  Það rignir annað hvort mikið eða mjög mikið.  Láttu okkur vita hvenær von er á þér á skerið.  Þá dettum við í það, það er löngu tímabært.  Kveðja Gulli.  

Gulli (IP-tala skráð) 28.9.2010 kl. 15:07

5 identicon

Bara að kvitta fyrir mig :) Hættu svo að slasa þig væni minn, þetta er komið gott. Ég held að þig fari sárlega að vanta líkamsparta sem þú átt "eftir" að meiða þig á !

Kv, Erla Gerður

Erla Gerður (IP-tala skráð) 30.9.2010 kl. 14:55

6 identicon

Ég erð orðin afar spennt að sjá Sólon, þetta lítur betur út með hverjum deginum.    Er í matarveislu í marga daga hér í Danaveldi og held svo áfram á Íslandi.  Hlakka til að sjá ykkur bráðlega og við náttúrulega fögnum ærlega þegar bátur siglir yfir. 

kk,h

Hulda (IP-tala skráð) 3.10.2010 kl. 05:44

7 identicon

Nú er ég farin að sakna þess að fá meiri skrif frá þér.  Það er gott að þú ferð að koma heim, því við viljum gjarna fá þig heilan heim.  knús frá okkur öllum, Edda.  ps, saumaklúbburinn döllurnar slógu í gegn með vísunni frá þér, þúsund þakkir Edda

edda (IP-tala skráð) 14.10.2010 kl. 15:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband