Langt er um liðið frá því ég dró til stafs á öldum bloggvakans síðast, er ekki örgrannt um að það hafi valdið mínum fjölmörgu aðdáendum uppsölum, innantökum og andvökunóttum. Svo rammt hefur að þessu kveðið að ég hefi hikstað löngum stundum, skal nú bætt úr og bataður hikstinn og læknaðar innantökur og uppsölur. Mér til málsbóta er þessi sígilda og marklausa setning: "Ég hef ekki haft tíma."...... Ekki hefur það þó verið imbinn sem hefur haldið mér frá ritningum annála heldur verkefnahrúga og stefnumót við fólk af þessum heimi svo og Ólaf frá Lokinhömrum (Óla Lokbrá).
Á daga mína hefur drifið margt, kannski ekki allt sem er í frásögur færandi en nú skal láta á það reyna hvað ykkur finnst um birtingarþörf efnis.
Allt hefur verið á fullum snúningi í Sóloni síðustu vikur og það var heldur en ekki handagangur í öskjunni þegar hann var svo loks sjósettur. Þá fór nú reyndar um suma Kínverjana því innan í þeim fór að ólga sjóveiki og höfuðverkir svo að þeir tolldu sumir ekkert í vinnu þó að bátur væri bundinn utan á skip við bryggjuna. Ekki átti nú ástandið eftir að batna þegar fleyið var fært útá legu, þá var eiginlega bara einn sem þoldi við.
Eitt hádegið fórum við Steindór og Garðar inní Gangkhou með það fyrir augum að gæða okkur á núðlum og Dömplings* og þar sem við sátum þarna og ég var að fikta við myndavélina mína, takandi myndir útí loftið, birtist svartklædd kvensnift við innganginn og ég smellti af henni mynd....hún uppveðraðist við þetta og vildi láta taka af sér fleiri myndir, ég lét það eftir henni og hún stillti Steindóri upp með sér og kjaftaði einhver ósköp. Síðan vildi hún endilega gefa okkur með sér af matnum sínum og hafði áhyggjur af því hvað ég var hroðalega skítugur og Steindór mikið hærður, vildi hún gera bragarbót á hvorutveggju, náði í sérvíettu og strauk yfir enni mér (servíettan varð brún!), þvínæst reif hún undir hönd á þeim stríðhærða og benti yfir götuna á hárgreiðslustofu. Svo

kláraði hún matinn sinn eftir að hafa párað eitthvað í bókina hans Garðars.......Þegar hún var farin gerði eigandi staðarins merki með fingrum þar sem einn fingur annarar handar fór inná milli tveggja hinnar handarinnar og var þar með ljóst við hvað þessi dama starfaði..... Ekki fékk hún skotsilfur frá okkur daman sú.
Smiðirnir vinna gjarnan á hækjum sér og þar á meðal er að skera Formækaplöturnar sem fara á veggina. Þá eru þeir jafnan með réttskeið sem þeir styðja vinstri höndinni á og þar sem þeir eru með hnífinn í þeirri hægri nota þeir hægri fótinn til að stíga á réttskeiðina við hinn endann, svo skera þeir. Ég hef aldrei séð þá meiða sig á þessu en furðað mig á því hvernig þeir sleppa við það.....ég ákvað að prófa þessa fínu aðferð og þóttist hana numið hafa nokkuð vel. Semsé; ég lagði réttskeið á formækað, lagði hönd og fót á hana og skar eftir kúnstarinnar reglum......framan af stóru tánni á mér!!!!! ég hafði nefnilega ekki tekið það með í reikninginn að fætur mínir væru stærri en þeirra kínversku og því stóðu tærnar of nálægt hnífsblaðinu. Ég þarf nú ekki að skipta um skónúmer, ég tók bara svona smá flipa af tánni og það blæddi næstum ekki neitt. Vika án hnjasks er ekki góð vika, eða svo mætti ætla miðað við hversu oft mér tekst að skaða mig í smáu sem stóru, oftar þó í smáu.
Síðasta kvöldmáltíðin var laugardaskvöld fyrir viku síðan eða svo, þann 16.okt. Þrjú borð voru tekin undir allt liðið á veitingastað á ströndinni. Þar var líf og fjör og mjög gaman, enda allir í stuði með Guði. Laddi, einn aðal-sprellikarlinn, kom að máli við mig og vildi gera mér stóran greiða með því að bjóða mér, við fjórða mann, á gleðihús.....hann skyldi borga. Ég þakkaði "gott" boð en sagði sem satt var að ég væri alls ekki inná þeirri línu að leita á "náðir" vændiskvenna, hann lét gott heita.
Skrýtin tilfinning að kveðja alla kallana daginn eftir, orðinn svo vanur að vera innan um þá og þykír vænt um þá hvern á sinn hátt, sumra mun ég þó ekki sakna, en margra nokkuð. Þessa karla á ég aldrei eftir að sjá aftur, en svona er jú lífið.
Nú er ég kominn til Hong Kong á ný og tekinn til við lokatörnina í bátaleik fyrir Bjarka, Strúllu, Huldu og Steindór. Litla káetan ætlar að verða mér verkefni margar daga en vonandi verður hún brúkleg á eftir. Ég hef sofið í bátnum hans Bjarka síðan Sólon kom frá Kína og það hefur verið sérlega notalegt að láta vagga sér í svefn úti á legunni.
Nú læt ég staðar numið í bili því það gusast útúr mér geysparnir þó að klukkan sé vart 10 að kveldi hér í Langtíburtistan. Ég bið ykkur vel að lifa og vonast til að pikka meira inn áður en ég sný aftur uppá klakann þann 5.nóv.
Athugasemdir
Jii þessir kínverjar ! en gott að heyra að þú hefur ekki náð að slasa þig meira. Njóttu þessara nokkru daga sem þú átt eftir og góða ferð heim :) knús og kossar
Ásdís Guttormsdóttir (IP-tala skráð) 26.10.2010 kl. 15:32
Ég er farin að efast um að þú fáir leyfi til að koma inn í landið, þeir í eftirlitinu halda örugglega að þú sért allt annar en þú ert ! nýr fingur, ný tá, ný hægrihlið o.s.frv og neita þér því um landvist !
Hvað er þetta eiginlega með þessa kínverja, vita þeir ekki að það situr kona í festum á Íslandi og bíður eftir þér, meiri dónarnir eða á maður frekar að túlka þetta sem greiðvikni við vin :-)
Kvittun lokið
Steina (IP-tala skráð) 27.10.2010 kl. 09:38
Ég er nú ekki frá því að mörlandar vilji gjarnan fá mig aftur, m.a.s. þeir hjá útlendingastofnun, ég er ekki það mikið breyttur að ég verði stoppaður af þeim, kann mögulega meira í kínversku en þegar ég fór utan í vor. Kínverjar vita vel að á Fróni situr kona í festum en þeir gjöra þetta allt af greiðasemi við vin, sem greinilega kann ekki gott að meta og hafnar öllu enda hugur hans hjá festarkonu á klakanum. Þeir hafa reyndar látið í það skína að samneyti við konur sé miklu betra í Kína en á Íslandi án þess að hafa þar nokkurn samanburð. Ég hef á móti sagt að slíkt sé miklu betra á Íslandi og það líka án þess að hafa hinn minnsta samanburð :)
Svörum lokið
ég sjálfur (IP-tala skráð) 27.10.2010 kl. 14:35
Komin aftur heim í Hamingjudal svo kannski ég fái að sjá þig um helgina! Merkilegt hvað ég hef lítið náð að sjá þig þessar vikur sem þú ert búinn að vera hér hjá okkur en reynum að bæta úr því um helgina. Það er allavega vika ef ekki meir þar til ég fer í næstu ferð.
kv,
Bekka
Rebekka (IP-tala skráð) 28.10.2010 kl. 01:43
Velkomin heim aftur Bekka. Endilega að hittast um helgina, kannski að við getum eytt saman laugardagsseinniparti (ekki mjög snemma svo Bjarki skammi mig ekki fyrir slugs !!! ) og þá kvöldinu líka. Hlýtur að vera hægt að gera eitthvað skemmtilegt þín megin, ekki síst ef það er nú Halloween. Ég gæti þá jafnvel skrýðst nýrri skyrtu og jafnvel -olíubuxum (Dieselbuxum). Gott að borða, gott að spjalla, gott að sötra, gott mál.
Eggert Mar (IP-tala skráð) 28.10.2010 kl. 09:00
Á laugardagseftirmiðdag verð ég á rúgbýlandsleik milli Nýja Sjálands og Ástralíu, tveggja heimsvelda í rúgbý. Eftir það verður vafalaust kíkt í bæinn....leikurinn er búinn klukkan 6. Heyrðu bara í mér og kíktu endilega. Verð með tvo gesti í heimsókn frá Shanghai sem gista hjá okkur en það eru nú alltaf ráð með fleiri bedda ef þarf.
Það verður allavega ÓGURLEGA mikið um að vera um helgina í bænum.
Rebekka (IP-tala skráð) 28.10.2010 kl. 11:51
Hæ hó, kannski ég kíki bara frekar eftir vinnu á sunnudaginn, þá verður næðið væntanlega betra, sjáum til, verðum í bandi
Eggert (IP-tala skráð) 28.10.2010 kl. 23:36
Ég ætla rétt að vona að þú komist heill á húfi heim á frón - en með þína lukku er það ekki líklegt! Ekki mikið eftir af þér til þess að meiða þig nema kannski naflinn eða handakriki?;) Hlökkum til að fá þig heim:) Sjáumst bráðum!
Erla Gerður (IP-tala skráð) 3.11.2010 kl. 16:14
Ætlarðu ekki að halda áfram að blogga frændi litli?
Rebekka (IP-tala skráð) 18.11.2010 kl. 09:03
Ég held ég megi til að blogga meira, það hefur bara ekki verið nokkur tími til þess, hef unnið eins og ég sé duglegur uppá síðkastið og kvöldin hafa líka verið upptekin. bæti úr þessu við fyrsta hentugleika og kem upplýsingum á facebook þegar það gerist. bestu kveðjur út
ps ég sakna ykkar :)
Eggert (IP-tala skráð) 19.11.2010 kl. 12:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.